Vill auka heimildir lögreglustjóra

Vítisenglar í dómssal.
Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, telur að hægt sé að ná þverpólitískri samstöðu á Alþingi um að veita Ríkislögreglustjóra auknar heimildir til að uppræta skipulagða glæpastarfsemi. Sé það ekki gert verði erfiðara að uppræta slíka starfsemi síðar meir.
Europol kynnti fyrir skömmu allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis drög að skýrslu um þróun og eflingu vélhjólasamtaka í Evrópu. Ekki fæst uppgefið hvað í henni stendur annað en að það gefi Íslendingum ástæðu til að hafa áhyggjur af þróun mála.
Siv Friðleifsdóttir lagði í haust fram þingsályktunartillögu þar sem innanríkisráðherra er falið að veita lögreglunni sambærilegar heimildir og lögregla í öðrum norrænum ríkjum hefur til að koma í veg fyrir skipulagða glæpastarfsemi. Siv segir mikilvægt að grípa til aðgerða fyrr en síðar. Upplýsingar sýni að staðan sé alvarleg og það sé ábyrgðarlaust að fljóta sofandi að feigðarósi í þessum efnum.
„Og ég vænti þess,“ bætir Siv við, „að það geti skapast þverpólitísk samstaða um það. Í öllu falli eru flestir flokkar á þingi á því að þörf sé á fyrirbyggjandi rannsóknarheimildum. Við þurfum bara að klára þetta. Það er alveg ljóst að það er komin aukin harka í skipulagða glæpastarfsemi á Íslandi og ef við grípum ekki til aðgerða hið fyrsta þá verður erfitt að uppræta slíka starfsemi síðar.“
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







