Mikil ólga hefur verið innan Vinstri grænna að undanförnu og segja má að þingflokkurinn hafi skipst í tvær fylkingar. Annars vegar þá sem fylgja formanninum Steingrími J. Sigfússyni að málum og hins vegar þá sem halla sér meira að Ögmundi Jónassyni. Hann sagði af sér sem ráðherra fyrir nokkrum mánuðum en mikill þrýstingur er á að hann verði aftur gerður að ráðherra, ekki bara innan VG, heldur líka innan Samfylkingarinnar. Öðruvísi sé ekki hægt að sameina Vinstri græn. Gangi það ekki séu dagar ríkisstjórnarinnar taldir.
Vera kann að mikill ráðherrakapall fylgi endurkomu Ögmundar í ríkisstjórn, ef af verður. Jóhanna Sigurðardóttir mun þó áfram leiða ríkisstjórnina, Steingrímur J. stýra fjármálaráðuneytinu og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðuneytinu. Aðrir kunna að færast til.
Málin hafa verið rædd á æðstu stöðum innan stjórnarflokkanna síðustu dægrin. Menn vilja helst að óhjákvæmileg uppstokkun á ráðherraskipan haldist í hendur við fyrirhugaðar breytingar á ráðuneytum. Ekki er þó mikil bjartsýni á að það takist.
Hvor stjórnarflokkanna hefur fimm ráðherra og tveir eru óflokksbundnir. Innan vinstri grænna ljá margir máls á að pólitískir ráðherrrar komi inn fyrir þá, en það vill Samfylkingin síður.
Samfylkingarráðherrarnir virðast líka allir öruggir í sessi og því ólíklegt að varaformaðurinn Dagur B. Eggertsson fái stól í þessari umferð. Allt bendir því til þess að einn ráðherra vinstri grænna þurfi að víkja fyrir Ögmundi. Þar eru nefnd nöfn þeirra Álfheiðar Ingadóttur, Svandísar Svavarsdóttur og Jóns Bjarnasonar.
Sumir vilja bíða með þetta þar til búið er að klára Icesave en mikill þrýstingur er á að klára málið sem fyrst, ekki seinna en um páskana.
frettir@ruv.is