Verkalýðsfélög starfsmanna Norðuráls á Grundartanga hafa átt í samningaviðræðum við álverið frá því í október í fyrra. Átjánda samningafundinum lauk í gær hjá Ríkissáttasemjara án niðurstöðu. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir töluvert hafa vantað upp á samningsvilja hjá forsvarsmönnum Norðuráls til þessa og að verulegrar óþreyju sé farið að gæta hjá starfsmönnum álversins.
Vilhjálmur vonast þó til að þeir fari að skynja að engar forsendur séu fyrir því að starfsmenn Norðuráls njóti ekki sömu launakjara og starfsmenn Alcan í Straumsvík, en tugum þúsunda króna munar í mánaðarlaunum fyrir sambærileg störf. Stóriðjufyrirtækin fái ódýra raforku hér á landi og það ætti því að vera sjálfsagt að borga starfsfólkinu góð laun. Vilhjálmur bendir á að Norðurál hafi skilað 16 milljarða hagnaði árið 2008, mestum hagnaði allra fyrirtækja á Íslandi. Margt bendi til þess að hagnaður Norðuráls í fyrra hafi verið nær tuttugu milljörðum. Vilhjálmur segir samninganefnd stéttarfélaganna reiðubúna til að sýna fulla hörku svo að launakjör starfsmanna Norðuráls verði jöfnuð í eitt skipti fyrir öll við kjör Alcan í Straumsvík.
Alls starfa um 500 manns hjá Norðuráli. Auk Verkalýðsfélags Akraness er starfsfólkið félagar í Rafiðnaðarsambandinu, Félagi iðn-og tæknigreina, VR og Stéttarfélagi Vesturlands. Ákveðið hefur verið að halda næst fund með Ríkissáttasemjara á mánudag.
frettir@ruv.is