Vilja göngin í samgönguáætlun

Meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar telur að Vaðlaheiðargöng eigi að vera á samgönguáætlun til jafns við aðrar framkvæmdir. Ef af því verður, verður farið í Norðfjarðargöng og Dýrafjarðargöng áður en ráðist verður í gerð Vaðlaheiðarganga.

Í bréfi, sem sex af níu nefndarmönnum í umhverfis og samgöngunefnd Alþingis skrifa undir og verður sent fjárlaganefnd og fjármálaráðherra kemur fram að öllum sé ljóst að Vaðlaheiðargöng séu ekki brýnasta samgönguverkefnið, og er þá nefnt sem dæmi að Norðfjarðargöng og Dýrafjarðargöng hafi verið metin meira aðkallandi. Forsenda fyrir göngunum hafi verið að þau stæðu undir sér en skýrslur sem komið hafi út um göngin leiði í ljós óvissu um hvort svo sé. Ekki sé ásættanlegt að langtímafjármögnun ganganna sé ekki betur frágengin en raun ber vitni.

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, formaður umhverfis- og samgöngunefndar, segir engin deila um að Vaðlaheiðargöng séu mikil samgöngubót. Hins vegar séu framangreind verkefni brýnni. „Og það er mat meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar að þetta sé háð mikilli áhættu og óvissu ftyrir ríkissjóð. Því sé ekki hægt að treysta þessari grunnforsendu og því sé eðlilegt að Vaðlaheiðargöng fari inn í samgönguáætlun og sé metin þar á jafnræðisgrundvelli.“

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, er ósáttur við þessa niðurstöðu. „Ef að menn ætla að fara með þetta inn í samgönguáætlun þá er þetta þannig að ríkið muni greiða þetta hundrað prósent. Nú er það þannig að þeir sem aka í gegnum göngin, þeir sem borga útsvar á svæðinu munu borga fyrir þau.“ Hann segir að vissulega sé áhætta til staðar fyrir ríkið, en það yrði þó aðeins brotabrot af því sem yrði ef verkið færi í samgönguáætlun. 

Fréttastofa hefur greint frá því að fjármálaráðuneytið vinni nú að frumvarpi sem feli í sér ríkisábyrgð á göngunum. „Ég lít svo á að þetta sé ákveðin viðurkenning á því af hálfu fjármálaráðuneytisins á því að hér verður að fara fram með öðrum hætti og með öðru módeli en hingað til hefur verið gert,“ segir Höskuldur.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku