Vilja ekki Tindaskóla
Fyrst birt: 23.01.2012 13:05, Síðast uppfært: 23.01.2012 16:45

Leikskólabörn úr Skýjaborg. Mynd: Hvalfjardarsveit.is
Íbúar í Hvalfjarðarsveit eru svo ósáttir við að sameinaður grunn- og leikskóli fái nýtt nafn að þeir eru byrjaðir að safna undirskriftum gegn nafnabreytingunni.
Frá þessu er greint á vef Skessuhorns. Þar segir að íbúar vilji halda nöfnunum Heiðarskóli og Skýjaborg. Nýja nafnið, sem sveitarstjórn samþykkti að undangenginni nafnasamkeppni, er Tindaskóli. Hugmyndin að því er komin frá nemanda í fjórða bekk skólans.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku








