Vilja ekki raforkulínu um Kjósahrepp

Í bókun sveitarstjórnar segir að starfsemin á Grundartanga hafi þegar valdið íbúum ómældu tjóni.

Hreppsnefnd Kjósarhrepps hefur hafnað ósk Landsnets um að fá að breyta og styrkja raforkulínu sem liggur í gegnum sveitarfélagið. Tilgangurinn með línunni er að auka flutningsgetu rafmagns að iðnaðarsvæðinu á Grundartanga, en hreppnefndin er á móti frekari uppbyggingu þar.

Landsnet fer fram á að Kjósarhreppur breyti aðalskipulagi, svo hægt verði að breyta og styrkja rafmagnslínu sem liggur austan Skálafells, niður í Hvalfjörð, um Botnsvog og að tengivirki á Brennimel, norðan Hvalfjarðar. Á fundi 2. febrúar ákvað hreppsnefndin, samhljóða, að hafna þessari beiðni Landsnets. Guðmundur H. Davíðsson er oddviti hreppsnefndar Kjósarhrepps. „Það er vegna þess að fólk hér er ekki ánægt með aukna uppbyggingu stóriðjunnar á Grundartanga. Menn tengja þessa línustyrkingu áframhaldandi uppbyggingu á svæðinu,“ segir Guðmundur H. Davíðsson oddviti hreppsnefndar Kjósahrepps.

Hreppsnefndin gengur lengra en að hafna beiðninni. Í bókun um þessa ákvörðun telur nefndin að starfsemin á Grundartanga hafi þegar valdið íbúum og fasteignaeigendum í Kjósarhreppi ómældu tjóni. „það hefur komið í ljós að það er flúormengun sem hefur mælst frá verksmiðjunum. Þetta eru verksmiðjur sem eru inni í lokuðum firði sem er útivistarparadís,“ segir Guðmundur.

 

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Vesturland

Tilkynna um bilaða upptöku