Vilja banna samkynhneigð

Gleðiganga var farin í Nýju Delhí í fjórða sinn í fyrra. Mynd: Nordic Photos/AFP.
Ríkisstjórn Indlands hvetur hæstarétt landsins til að snúa við úrskurði sínum um að bann gegn samkynhneigð standist ekki stjórnarskrá.
Breska heimsveldið innleiddi bann við kynlífi fólks af sama kyni á nýlendutímanum en hæstiréttur Indlands nam það úr gildi árið 2009 eftir að mannréttindasamtök höfðuðu mál. Fréttaskýrandi BBC segir að þrátt fyrir það séu samkynhneigðir enn litnir hornauga af stórum hluta Indverja og líklegt er að ríkisstjórnin myndi vinna sér nokkrar vinsældir ef henni tækist að fá hæstarétt til að banna samkynhneigð á ný. Í upprunalegu lögunum segir að „ónáttúrulegt kynlíf sem brjóti gegn lögmálum náttúrunnar“ sé óheimilt. Í umsögn ríkisstjórnarinnar segir að samkynhneigð sé ósiðleg og því sé æskilegt að gömlu lögin taki gildi á ný en lögspekingum þykir orðalag þeirra óljóst og illa skilgreint.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ErlentFleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Boðskapur gegn samkynhneigð í lagi
Samkynhneigir í hættu í Úganda






