Vildu rannsaka Hallgrím

Systurskip Krossness voru tvö.

Rannsóknarnefnd sjóslysa vildi að gerð yrði rannsókn á stöðugleika skipsins sem síðar varð Hallgrímur SI, eftir að systurskip þess fórst á Halamiðum fyrir tuttugu árum. Engin slík athugun fór fram.

Krossnes SH var að veiðum á Halamiðum í febrúar 1992, þegar slagsíða kom á skipið þegar verið að hífa. Skipið sökk á skömmum tíma. Þrír menn fórust, ellefu var bjargað. Í skýrslu Rannsóknarnefndar sjóslysa um Krossnesið kemur fram að stöðugleiki skipsins hafi raskast og rýrnað, en það sé hins vegar með öllu óljóst hvers vegna það gerðist. Ástráður Haraldsson var formaður Rannsóknarnefndar sjóslysa á þessum tíma.

„Það var mikið unnið í þessu máli á vegum rannsóknarnefndar sjóslysa og niðurstaða okkar var sú að það væri mikilvægt að það yrðu gerðar rannsóknir - einkanlega hvað varðaði stöðugleika á systurskipum sem þá voru á sjó,“ segir Ástráður Haraldsson, sem var formaður Rannsóknarnefndar sjóslysa á þessum tíma.

Engin niðurstaða fékkst í sjóprófum um ástæður þess að Krossnesið sökk svo skyndilega. Aðstæður voru góðar og ekkert að veðri. „En rannsóknarnefndni hafði ekki burði eða fjármuni til að láta slíka rannsóknir fara fram á sínum vegum og fékk ekki til þess aukafjárveitingar,“ segir Ástráður. Rannsóknirnar voru því aldrei gerðar.  

Systurskip Krossnessins voru annars vegar skipið sem síðar fékk nafnið Hallgrímur SI og hins vegar Geysir SH, sem var selt til Rússlands fyrir nokkrum árum. Fréttastofa hefur rætt við nokkra af þeim sem áttu þessi skip og þeir bera þeim vel söguna. Ástráður segir óvarlegt að draga of miklar ályktanir af þeirri staðreynd að þessi skip voru ekki skoðuð sérstaklega eftir að Krossnesið fór niður. Langur tími hafi liðið og margt hafi getað gerst. Nefndin sá hins vegar ástæðu til að kalla eftir rannsókn.

„Já á sínum tíma var nefndin í þeim vanda að það fannst ekki viðhlítandi skýring á því hvervegna Krossnesið fór niður í febrúar 1992 og það eina sem við töldum unnt að gera til að leiða orsakir í ljós var að framkvæmda þessar rannsóknir á systurskipunum, en við höfðum ekki fjárhagslegt bolmagn til þess og fengum ekki peninga til þess.“

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku