Vildi 10 ára dóm yfir barnaníðingi
Fyrst birt: 20.01.2012 08:00, Síðast uppfært: 20.01.2012 11:08

Páley Borgþórsdóttir, lögmaður í Vestmannaeyjum. Mynd: Sighvatur Jónsson
Réttargæslumaður telpna sem maður í Vestmannaeyjum níddist á segir að þynging Hæstaréttar á fangelsisdómi mannsins í átta ár sé ásættanleg niðurstaða. Páley Borgþórsdóttir, lögmaður í Eyjum, vildi þó þyngja refsinguna í tíu ár.
Hún tekur þannig til orða að því miður sé raunin sú að menn fái afslátt þegar brotið er gegn mörgum einstaklingum, því refsing yrði þyngri ef dæmt væri fyrir hvert einstakt brot. Páley ítrekar þó að átta ára fangelsi sé þungur dómur, og segist skilja vel að Hæstiréttur þurfi að gæta jafnræðis og þyngja dóma við kynferðisbrotum í áföngum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku








