Prenta frétt

Senda frétt

Víkingur AK með fullfermi af loðnu

Hátt í 60 þúsund tonn af loðnu eru nú komin á land það sem af er vertíðinni. Á milli fimm og tíu bátar hafa verið á miðunum við Snæfellsnes. Einn þeirra, Víkingur AK, er á leið á Vopnafjörð með fullfermi.

Magnús Þorvaldsson, skipstjóri á Víkingi, segir að þeir hafi fengið loðnuna suðvestur af Malarrifinu.

Víkingur er drekkhlaðinn - með 1400 tonn - sem fengust í fjórum til fimm köstum. Magnús segir að loðnan sé þokkaleg, en þó ekki orðin nógu þroskuð til að gefa mest verðmæti. Víkingur er búinn að vera viku á veiðum og tíðarfarið hefur verið erfitt.  Magnús segir með ólíkindum að hægt hafi verið að veiða í gær. Veður hafi verið slæmt, en menn reyni eins og hægt sé.

Víkingur AK verður á Vopnafirði í nótt - þar og á Akranesi eru komin 14 þúsund tonn á land - í Neskaupstað um 20 þúsund. Samkvæmt yfirliti fiskistofu eru komin um fimmtíu og fimm þúsund tonn á land síðan loðnuvertíðin hófst um miðjan febrúar.


 
        

frettir@ruv.is


Senda á Facebook

29. júlí 2010

Streymiþjónusta