Viðvörun frá veðurfræðingi

Mynd úr safni.

Norðvestan strengurinn er kominn inn á höfuðborgarsvæðið og segir Haraldur Ólafsson veðurfræðingur að jafnvel geti brostið á með stormi á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum um og upp úr klukkan eitt. Einnig verður hvassviðri á vestanverðu landinu.

Þessu fylgir slydda og snjókoma. Versta óveðrið mun að öllum líkindum standa yfir í um tvo tíma.

Veðurspáin gerir ráð fyrir hvassviðri á Suðurlandi og hviður allt að 35-40 metrar á sekúndu undir Eyjafjöllum frá því aum klukkan 14 til klukkan 17. Á fjallvegum Asutfjarða á stórhríðarveður að ganga niður og hlána um miðbik dagsins. Gengur í N- og NV- storm með snjókomu og skafrenningi norðanlands um klukkan 16 til 18 og norðaustan- og austanlands um klukkan 19-21, þá með snörpum hviðum sunnan undir Vatnajökli og á Austfjörðum fram á nóttina.

Helgistund sem vera átti í kirkjugarðinum í Vestmannaeyjum klukkan 14:00 í dag hefur verið frestað vegna veðurs.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Veður

Tilkynna um bilaða upptöku