Viðræðurnar þokast áfram

Á bæjarstjórnarfundi í Kópavogi.
Enn hefur ekki verið gengið frá myndun nýs meirihluta í Kópavogi en í dag eru þrjár vikur síðan sá gamli sprakk. Viðræður Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Kópavogslistans um myndun nýs meirihluta héldu áfram í dag.
Ágreingur um uppsögn bæjarstjórans í Kópavogi varð til þess að gamli meirihlutinn sprakk fyrir þremur vikum og enn á eftir að koma í ljós hvort Sjálfstæðisflokki, Framsókn og Kópavogslistanum tekst að mynda starfhæfan meirihluta. Sú staða að jafn stórt bæjarfélag og Kópavogur hafi verið svo lengi án meirihluta er mjög óvenjuleg.
Oddvitar flokkanna þriggja hafa lítið viljað tjá sig um gang viðræðna en fundi þeirra lauk á sjöunda tímanum í kvöld. Ármann Kr. Ólafsson, oddviti Sjálfstæðismanna, vildi ekkert annað segja en að fundurinn hefði verið góður. Samkvæmt heimildum fréttastofu snúast viðræðurnar nú um að ná samkomulagi um skiptingu embætta. Kópavogslistinn hefur haft það á sinni stefnuskrá að bæjarstjórinn sé ópólitískur en ekki er talið útilokað að oddviti Sjálfstæðismanna, Ármann Kr. Ólafsson, verði bæjarstjóri. Það munu þó ekki vera úrslitakostir af hálfu flokksins þar sem allt kapp er lagt á að mynda meirihluta í bænum.
Birgir Guðmundsson, dósent við Háskólann á Akureyri, sagði í hádegisfréttum að staðan í Kópavogi væri einstök. Málið hefði vakið upp spurningar sem kalli á umræður um það hvort hugsanlega þurfi að breyta sveitastjórnarlögum. Til dæmis að tryggja að hægt sé að kjósa upp á nýtt ef þessi staða kemur aftur upp. Í sveitarstjórnarlögum er ekkert ákvæði sem skyldar bæjarfulltrúana til að mynda meirihluta eða setur þeim tímaskorður.
En þrátt fyrir þetta er bæjarstjórinn í Kópavogi enn starfandi og hjól stjórnsýslunnar í bænum halda að snúast.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku








