Viðbúnaður við amfetamínverksmiðju

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði í dag hald á búnað sem talið er að hafi átt að nota til að framleiða amfetamín í bílskúr í við Efstasund í Reykjavík. Lögregla réðst þar inn síðdegis í gær og var götum í kring lokað.
Húsráðandi, karl á fimmtugsaldri, var handtekinn í þágu rannsóknarinnar og vistaður á lögreglustöð. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að engin sprengihætta sé samfara þeim aðgerðum sem nú standa yfir.
Lögregla hefur notið aðstoðar sérfræðinga rá Háskóla Íslands og Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins við að taka niður verksmiðjuna og kom upp sérstöku tjaldi í garði hússins. Þangað bar hún efni og tól svo hægt væri að búa um þau á viðeigandi hátt áður en hægt var að flytja þau á brott af vettvangi. Því verki var ekki lokið um miðnættið.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













