Víða hált á vegum

Það er víða hált á vegum. Hálkublettir eru á Hellisheiði og Þrengslum og snjóþekja á Lyngdalsheiði. Þá eru hálkublettir víðast hvar á Suðurlandi og hált í kringum Vík í Mýrdal. Á Vesturlandi er hálka og hálkublettir. Þæfingur er á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku en verið er að hreinsa.
Á Vestfjörðum er víðast hvar hálka eða jafnvel snjóþekja. Þæfingsfærð er á Klettshálsi og frá Þorskafirði í Gufudal.Einnig er þæfingur á Hálfdán og Mikladal en þar er unnið að mokstri. Þungfært er á Kleifaheiði og Þröskuldum og þæfingur á Steingrímsfjarðarheiði og á Ströndum.
Það er hálka og hálkublettir á Norðurlandi. Hálkublettir og skafrenningur er á Öxnadlasheiði og hálka og éljagangur á Víkurskarði.
Hálkublettir eru á Mývatns- og Möðrudalsöræfum en vegir á Austurlandi og Suðausturlandi eru víðast hvar auðir. Hálkublettir eru á Öxi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku








