Verkfall í Grikklandi á morgun

Frá verkfalli í Aþenu í fyrra. Mynd: Nordic Photos/AFP

Tvö stór verkalýðsfélög í Grikklandi hafa boðað til sólarhringsverkfalls á morgun til að mótmæla fyrirhuguðum niðurskurði, uppsögnum starfsfólks og skattahækkunum.

Lánardrottnar gríska ríkisins krefjast þess að stjórnvöld grípi til enn harðari efnahagsaðgerða gegn því að komið verði í veg fyrir greiðslufall í næsta mánuði og að hluti af ríkisskuldunum verði felldur niður. Papademos forsætisráðherra á í dag fund með sendimönnum frá Evrópusambandinu, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Alþjóðabankanum til að fara yfir stöðuna. Síðar í dag ræðir hann við leiðtoga stjórnmálaflokkanna sem aðild eiga að stjórn landsins. Sumir þeirra telja að svo langt hafi verið gengið í niðurskurðarátt á undanförnum misserum að lengra verði ekki komist.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Evrópa, Erlent

Tilkynna um bilaða upptöku