Verða að virða rétt samkynhneigðra

Ráðamenn í Afríkuríkjum verða að virða réttindi samkynhneigðra og standa vörð um þau. Þetta sagði Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, þegar hann ávarpaði fund Afríkubandalagsins í morgun.

Ban Ki-moon sagði að of lengi hefði það viðgengist í sumum ríkjum álfunnar að réttindi samkynhneigðra væru lítilsvirt. Hann gagnrýndi að stjórnvöld í sumum ríkjum gerðu ekkert til að sporna gegn ofsóknum sem samkynhneigðir sættu og annars staðar væru ofsóknirnar með vitund og vilja stjórnvalda. Þessu yrði að linna.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka