Velta Visa jókst í janúar
Fyrst birt: 08.02.2012 16:09, Síðast uppfært: 08.02.2012 16:09

Heildarvelta Visa kreditkortaviðskipta jókst um 6,8 prósent í janúar ef miðað er við sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Valitor. Notkun innanlands jókst um 5,6 prósent en erlendis var veltuaukningin tæp 17,4 prósent.
Mest jókst veltan á bensínstöðvum og eldsneytissjálfsölum, eða um tæp tíu prósent. Veltan dróst hins vegar saman í áfengisverslunum um 2,3 prósent. Heildarvelta ársins 2011 jókst einnig frá árinu 2010, aukningin var 8,6 prósent innanlands og tæp 22 prósent utanlands.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku








