Veður torveldar samgöngu í Evrópu

Lambhúshettur eru þarfaþing í frosthörkunum í Rúmeníu, þar sem 57 hafa farist úr kulda.

Samgöngur víða í Evópu hafa farið úr skorðum í dag vegna snjókomu og kulda sem legið hefur yfir meginlandinu að undanförnu. Dóná er víða ísilögð, þar á meðal í Rúmeníu og Búlgaríu. Þar hefur skipaumferð um ána verið bönnuð.

Tugir þúsunda íbúa í litlum þorpum í Serbíu eru innilokaðir vegna snjókomu og þyrlur hafa verið notaðar til að koma til þeirra vistum. Á Ítalíu hafa flugsamgöngur raskast og vegum verið lokað vegna mikilllar snjókomu. Vinsælir ferðamannastaðir á borð við hringleikahúsið - kólóseum - í Róm eru lokaðir, og lestarferðir liggja víða niðri. Sumstaðar hafa íbúar þurft að yfirgefa hús sín þar sem hætta er talin á að þök þeirra séu að sligast undan snjóþyngslum. Hundruð manna hafa látist í þessu kuldakasti; flestir í Úkraínu.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Evrópa, Erlent, Veður

Tilkynna um bilaða upptöku