Vart boðlegt að bíða lengur

Það er vart boðlegt lengur að bíða eftir því að Ólafur Ragnar Grímsson forseti taki af allan vafa um hvort hann gefi kost á sér í forsetakosningum í sumar eða ekki. Þetta sagði Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í Silfri Egils.
Rætt var um framtíð forsetans í þættinum. Kristján Þór sagði að komið væri út að ystu mörkum þess tíma sem gæfist til að skýra stöðuna. Baldur Óskarsson, forvígismaður söfnunarinnar, sagði að menn hefðu tekið tillit til þessarar óvissu með því að stytta þann tíma sem undirskriftasöfnunin stæði yfir. Upphaflega hafi átt að láta hana standa í tvo mánuði og stefna að 40 þúsund undirskriftum. Hins vegar hafi verið ákveðið að ljúka henni fyrr en upphaflega stóð til og afhenda forsetanum þær undirskriftir sem höfðu safnast fyrir þann tíma.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is









