Varðhald yfir Breivik var framlengt

Anders Behring Breivik kemur í réttarsal í Ósló í dag. Mynd: Nordic Photos/AFP
Gæsluvarðhald yfir Anders Behring Breivik var í dag framlengt þar til réttarhöld yfir honum hefjast. Breivik kom fyrir dómara í dag og heilsaði með kveðju hægriöfgamanna þegar hann gekk í réttarsalinn.
Fram til þessa hefur Breivik einungis brugðið fyrir í bíl á leið til og frá réttarsalnum en í dag var fjölmiðlum heimilað að mynda hann í tvær mínútur áður en dómhald hófst. Margir höfðu óttast að Breivik myndi nota tækifærið til að flytja hatursboðskap sinn. Hann stillti sig um slíkt en hóf í staðinn hlekkjaðar hendur sínar á loft. Í yfirheyrslu viðurkenndi Breivik að hafa framið fjöldamorðin í Útey og Ósló en það hefði hann gert til að vernda Norðmenn fyrir svikurum. Því ætti að láta hann lausan og veita honum orðu.
Eins og búist var við ákvað dómarinn að framlengja gæsluvarðhaldið yfir Breivik þar til réttarhöld yfir honum hefjast þann 16. apríl.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku








