Varar við efnahagslegu öngþveiti

Öngþveiti verður í Grikklandi ef greiðslufall verður hjá hinum opinbera sagði forsætisráðherra landsins í kvöld. Allt verði gert til að koma samningum um neyðarlán í gegnum þingið um helgina.
Táragasi var skotið á mótmælendur í Aþenu í dag. Tveggja sólahringa verkfall hófst þá. Fólk lét í ljós óánægju með niðurskurð sem væri kominn inn að beini. Evrópusambandið, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Evrópski seðlabankinn vilja að meira sé skorið niður og tryggt að áætlun um það fari í gegnum gríska þingið á sunnudaginn til að aftur verið borgað að neyðarláni til Grikkja. Nauðsynlegt er að fá næstu greiðslu svo gríska ríkið geti borgað skuldir sínar í næsta mánuði.
Lukas Papademos, forsætisráðherra landsins, sagði í ávarpi í kvöld að ríkisstjórn hans myndi gera það sem þyrfti til að koma samningnum um forsendur neyðarlánsins í gegnum þingið. Söguleg ábyrgð hvíldi á herðum stjórnmálamanna. Efnahagslegt öngþveiti yrði í landinu og sprenging í þjóðfélaginu ef áætlunin yrði ekki samþykkt. Ljóst er að það mun reynast Papademos erfitt að fá áætlunin samþykkt. Sex ráðherrar í ríkisstjórn hans hafa í dag sagt af sér til að mótmæla henni.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Mótmæli í Grikklandi
Átök í Aþenu í dag
Þrýsta enn frekar á Grikki





