Valur vann KR í Vesturbænum

Valsarar höfðu betur gegn KR-ingum í Vesturbænum í kvöld - Mynd: Eva Björk
Heil umferð var leikin í úrvalsdeild karla í knattspyrnu í kvöld.
ÍBV sigraði Fylki 4-0 í Árbænum og komu öll mörkin í fyrri hálfleik. Víðir Þorvarðarson, Þórarinn Ingi Valdimarson og Christian Steen Olsen gerðu eitt mark hver fyrir Eyjamenn auk þess sem leikmaður Fylkis skoraði sjálfsmark.
FH lagði Breiðablik á Kópavogsvelli og var það Albert Brynjar Ingason sem skoraði sigurmarkið strax á fyrstu mínútu leiksins.
Selfoss vann 4-2 sigur á Fram á heimavelli. Jón Daði Böðvarsson skoraði tvö mörk fyrir Selfoss og þeir Viðar Örn Kjartansson og Jon Andre Röyrane eitt mark hvor en Almarr Ormarsson gerði bæði mörk Framara.
KR-ingar töpuðu fyrir Val 3-2 á heimavelli sínum í Vesturbæ. Kolbeinn Kárason, Haukur Páll Sigurðsson og Kristinn Freyr Sigurðsson skoruðu fyrir Val en Gary Martin var með bæði mörk KR-inga.
ÍA gerði góða ferð til Keflavíkur og vann 3-2 sigur á heimamönnum. Dean Martin, Einar Logi Einarsson og Jóhannes Karl Guðjónsson gerðu mörk Skagamanna en Jóhann Birnir Guðmundsson skoraði bæði mörk Keflvíkinga.
Þá tapaði Stjarnan fyrir Grindavík 4-3 á heimavelli sínum í Garðabæ. Ian James Williamson, Pape Mamadou Faye og Tomi Ameobi skoruðu eitt mark hver fyrir Grindavík en eitt marka liðsins var sjálfsmark leikmanns Stjörnunnar. Garðar Jóhannsson, Mark Doninger og Halldór Orri Björnsson gerðu mörk Stjörnunnar.
Að fimmtán umferðum loknum er FH í efsta sæti deildarinnar með 32 stig og hefur nú fimm stiga forystu á KR sem er í öðru sæti með 27 stig en ÍBV er í þriðja sæti með 26 stig. Grindavík er í neðsta sæti með 10 stig, þá Selfoss með 11 stig og Fram með 13 stig.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












