Valur lagði topplið Hauka

Topplið Hauka tapaði fyrir Val í kvöld - Mynd: Eva Björk

Úrvalsdeild karla í handknattleik hófst aftur í kvöld eftir frí vegna Evrópumótsins í Serbíu sem er nýlokið.

Fram tók á móti Gróttu í Safamýrinni og voru það heimamenn sem unnu tveggja marka sigur 23-21 eftir að hafa verið tveimur mörkum undir í hálfleik 8-10. Stefán Baldvin Stefánsson var markahæstur í liði Fram með fimm mörk en Þorgrímur Smári Ólafsson skoraði fimm mörk fyrir Gróttu í leiknum.

HK vann tveggja marka sigur á Akureyri fyrir norðan 27-25 en gestirnir höfðu yfir í hálfleik 13-11. Bjarni Fritzson skoraði níu mörk fyrir heimamenn en þeir Bjarki Már Elísson, Tandri Már Konráðsson og Ólafur Bjarki Ragnarsson voru allir með fimm mörk fyrir HK.

Valur lagði topplið Hauka með sjö mörkum 25-18 á Hlíðarenda en staðan var jöfn í leikhléi 8-8. Anton Rúnarsson skoraði tíu mörk fyrir Valsmenn en Freyr Brynjarsson var markahæstur gestanna úr Hafnarfirði með fimm mörk.

Þá sigraði FH lið Aftureldingar með fjögurra marka mun 24-20 í Kaplakrika en gestirnir úr Mosfellsbæ höfðu eins marks forystu í hálfleik 11-10. Örn Ingi Bjarkason skoraði sex mörk fyrir FH-inga en Jón Andri Helgason var markahæstur Mosfellingar með sex mörk einnig.

Haukar eru efstir með 20 stig, þá FH og HK með 17 stig, Fram í fjórða sæti með 16 stig, Akureyri með 14 stig í fimmta sæti, Valur í sjötta sæti með 13 stig, Afturelding með 6 stig í sjöunda sæti og Grótta í áttunda og neðsta sæti með 1 stig.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku