Valt með hestakerru með 2 hrossum
Fyrst birt: 10.02.2012 23:40, Síðast uppfært: 11.02.2012 07:11

Ökumaður og tvö hross sluppu með minniháttar áverka þegar jeppabifreið með hestakerru valt í grennd við Grundartanga á tíunda tímanum í kvöld. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi er mikil hálka á veginum þar sem óhappið varð og missti ökumaðurinn stjórn á bílnum.
Hann var einn á ferð og fluttur á slysadeild en með minniháttar meiðsli. Hrossin tvö eru talin hafa sloppið að mestu ómeidd, eftir fyrstu skoðun. Jeppinn er talinn ónýtur og kerran er talsvert skemmd, ef ekki ónýt einnig.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
InnlentTilkynna um bilaða upptöku







