Útibú opnað á Akureyri

Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara.

Útibú Umboðsmanns skuldara var opnað á Akureyri í dag. 5 prósent þeirra sem leita til embættisins koma af Norðurlandi. Búist er við að þeim fjölgi í kjölfar opnunar útibúsins á Akureyri.

Útibú Umboðsmanns skuldara á Akureyri er annað útibú embættisins. Fyrir rúmu ári var opnað útibú í Reykjanesbæ. Tveir ráðgjafar verða starfandi á Akureyri. Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara, segir opnun útibúsins fyrir norðan eiga sér langan aðdraganda en fjöldi Norðlendinga sé í hópi þeirra sem leitað hafi til embættisins. Hún segir að reynslan hafi sýnt að þegar þjónustan er komin á svæðið aukist meiri aðsóknin.

„Þetta er í raun og veru tilraunaverkefni og við þurfum að sjá hvernig þetta kemur út hér og hvernig nágrannasveitarfélögin munu nýta þjónustuna,“ segir Ásta Sigrún.  „Við erum bara mjög spennt og mjög ánægð með að geta veitt þessa þjónustu utan Reykjavíkur af því að þessi nærþjónusta er mjög mikilvæg.“ 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Norðurland

Tilkynna um bilaða upptöku