Útflutningur dregst saman

Kreppan í löndum Evrópusambandsins hefur leitt til þess að útflutningur á íslensku lambakjöti hefur dregist verulega saman. Framkvæmdastjóri Norðlenska segir að kreppan í Evrópu bíti.
Íslenskar afurðastöðvar fluttu út kindakjöt á fyrsta ársfjórðungi fyrir samtals 786 milljónir króna, en á sama tímabili í fyrra var flutt út fyrir 913 milljónir. Mest er flutt út til Evrópulanda sem eru utan Evrópusambandsins, en athygli vekur að Evrópusambandslönd hafa dregið verulega úr kaupum á íslensku lambakjöti.
Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs var selt fyrir aðeins 52 milljónir króna, en í fyrra var fjárhæðin samtals liðlega 300 milljónir. „Helsta skýringin er lækkað verð í Evrópu. Kreppan bítur í Evrópu. Síðastliðið vor voru hæstu verð sem við höfðum séð í Evrópu og þá örlaði á smá bjartsýni. Það var minnkandi vöruframboð inn á Evrópu og við áttum eitthvað af kjöti hérna á Íslandi og allir fluttu út sem gátu,“ segir Sigmundur Ófeigsson, framkvæmdastjóri Norðlenska.
Sigmundur býst við að afurðastöðvarnar haldi að sér höndum varðandi útflutning, enda sé hagkvæmast að selja á haustin, - í sláturtíðinni. Hann segir að mikil eftirspurn sé eftir íslensku kjöti í Noregi og er þokkalega bjartsýnn á að jafnvægi verði í útflutningi á lambakjöti. „Maður heyrir að það hefur gengið verr að selja það kjöt sem var flutt á Evrópumarkaði frá Íslandi heldur en til stóð. Og við sjáum, þegar það hefur orðið tuttugu prósent verðlækkun á sumum hlutum í lambi, að það er erfitt í Evrópu.“
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













