Utandeildarliðið Eik sigursælt

Síðari undankeppni bikarkeppninnar í blaki hófst í gærkvöld bæði í karla- og kvennaflokki en leikið er um helgina í Íþróttahöllinni á Akureyri.
Í kvennaflokki hófst keppni á þremur leikjum. HK sigraði Ými nokkuð örugglega 2-0, utandeildarliðið Eik vann Stjörnuna nokkuð óvænt 2-0 eftir spennandi leik og KA hafði betur gegn Þrótti Reykjavík 2-0.
Í karlaflokki var Stjörnunni dæmdur 2-0 sigur gegn UMFG en Grundfirðingar mættu ekki til leiks og Þróttur Neskaupsstað vann KA eftir spennandi leik sem endaði í oddahrinu 2-1.
Konurnar kepptu svo aftur og vann þá HK lið KA 2-0, Stjarnan sigraði Ými 2-0 og Eikarkonur unnu Þrótt Reykjavík í spennandi leik sem endaði í oddahrinu 2-1.
Í kvennaflokki er HK efst með 6 stig og Eik með 5 stig, Stjarnan og KA hafa 3 stig, Þróttur 1 stig og Ýmir er neðst án stiga.
Stjarnan er efst með 3 stig í karlaflokki, Þróttur Nes í öðru sæti með 2 stig og KA með 1 stig í þriðja sæti en Fylkir, sem sat hjá í gærkvöld, og UMFG eru án stiga.
Mótið heldur áfram í dag.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ÍþróttirTilkynna um bilaða upptöku







