Úrslitin ráðast á Wimbledon í dag

Bretinn Andy Murray og Svisslendingurinn Roger Federer mætast í úrslitum Wimbledon-mótsins í tennis í dag - Mynd: AFP


  • Prenta
  • Senda frétt

Bretinn Andy Murray og Roger Federer frá Sviss mætast í úrslitum í einliðaleik karla á Wimbledon-mótinu í tennis í dag.

Hinn 25 ára gamli Murray, sem er í fjórða sæti heimslistans, hefur aldrei áður staðið uppi sem sigurvegari á stórmóti en hann getur með sigri í dag orðið fyrsti Bretinn til þess að fagna sigri í einliðaleik karla í 76 ár eða síðan Fred Perry vann titilinn árið 1936.

Federer, sem er þriðji á heimslistanum, þykir sigurstranglegri í dag en hann hefur unnið Wimbledon-mótið sex sinnum og getur með sigri jafnað met Pete Sampras sem vann mótið alls sjö sinnum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku