Prenta frétt

Senda frétt Hlusta á frétt

Undrast kæru frá Viðlagatryggingu

Djúpadalsvirkjun Mynd af vefsíðu Verkfræðistofu Norðurlands.
Djúpadalsvirkjun Mynd af vefsíðu Verkfræðistofu Norðurlands.
Ásgeir Magnússon, stjórnarformaður Norðurorku, undrast þá ákvörðun stjórnar Viðlagatryggingar Íslands að kæra stjórnendur Fallorku, dótturfélags Norðurorku, til ríkislögreglustjóra fyrir meðal annars tryggingasvik.

Hann segir allan málatilbúnað Viðlagatryggingar vera stofnuninni til minnkunar. Stjórn Viðlagatryggingar Íslands kærði stjórnendur Fallorku til ríkislögreglustjóra fyrir tryggingasvik eða tilraun til þeirra og fyrir að stofna lífi manna í hættu. Það á fyrirtækið að hafa gert með því að safna vatni í lón Djúpadalsvirkjunar í Eyjafjarðarsveit áður en mannvirkið var tilbúið þannig að það brast í miklum vatnavöxtum í desember 2006. Viðlagatrygging hafnaði greiðslu bóta til Fallorku vegna gífurlegs tjóns af völdum flóðsins, en úrskurðarnefnd ógilti úrskurð Viðlagatryggingar.

Ásgeir Magnússon, formaður stjórnar Norðurorku, segir að í ljósi niðurstöðu úrskurðarnefndar hafi verið talið að Viðlagatrygging myndi bæta tjónið á Djúpadalsvirkjun. Með vöxtum gæti upphæðin verið allt að 200 milljónir króna.

Hann undrast að Viðlagatrygging hafi telji nú að stjórnendur Fallorku hafi gerst sekir um óhæfuverk sem bæri að kæra þá fyrir. Sérkennilegt sé að menn séu þá ekki kærðir strax heldur þegar  stefni í að viðlagatrygging þurfi að greiða fyrir tjónið. Hann segist ekki geta ímyndað sér hvað það sé sem menn eigi að hafa grafið upp nú þegar komið sé á fjórða ár frá því þetta var. Þetta sé Viðlagatryggingu til minnkunar.


 
        

frettir@ruv.is


Senda á Facebook

29. júlí 2010

Streymiþjónusta