Ummæli kennara til skoðunar

Akureyri. Mynd: Þórgunnur Oddsdóttir

Akureyrarbær hefur ummæli grunnskólakennara í bænum til skoðunar. Kennarinn sagði á bloggsíðu sinni að samkynhneigð væri synd. Foreldrar nemenda við skólann segja ummælin ógeðfelld og ekki sæmandi barnakennara.

Kennarinn, Snorri Óskarsson, oftast kenndur við trúarsöfnuðinn Betel, kennir unglingum í Brekkuskóla á Akureyri. Að sögn Gunnars Gíslasonar, fræðslustjóra Akureyrarbæjar, eru ummælin til skoðunar og málið í lögformlegu ferli hjá bænum. Gunnar staðfestir jafnframt að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem skrif Snorra veki viðbrögð og komi inn á borð skóladeildarinnar. Að öðru leyti vildi Gunnar ekki tjá sig um málið.

Logi Már Einarsson situr í skólanefnd Akureyrarbæjar og er faðir barna í Brekkuskóla. Hann tjáir sig hvorki um hvern né hvað er fjallað á skólanefndarfundum Logi Már segist fyrst og fremst tjá sig sem foreldri og borgari þessa lands og bæjar. Menn hafa verið að spyrja sig um þessi skrif og hvað foreldrum finnst um þau. Sé finnist þau ógeðfelld og ekki sæmandi barnakennara. Þau fara á svig við almenn hegningarlög að sínu áliti. Logi Már segir að flestir foreldrar sem haft hafi samband við sig hafa tjáð sig á sama hátt. Aðrir kunni að hafa aðrar skoðanir, en hann hafi ekki heyrt í þeim.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Norðurland

Tilkynna um bilaða upptöku