Tundurduflið áður lent í veiðarfærum

Flokkar: Innlent


  • Prenta
  • Senda frétt

Svo virðist sem tundurdufl sem togarinn Sóley fann í gær hafi einnig lent í veiðarfærum annars skips fyrir skömmu. Áhöfn þess skips hafi hins vegar látið duflið falla að nýju í hafið en nýlegt tóg í auga tundurduflsins vakti athygli sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar.

Staðsetning duflsins sem fannst í gær kom sprengjusérfræðingum nokkuð á óvart en það fannst á Búrbanka, um 20 sjómílur vestur af Reykjanestá.

Vanalega finnast duflin norðar á hafsvæðinu eða nær Garðskaga enda eru til teikningar af tundurduflagirðingum sem þýski herinn lagði á þessu svæði í seinni heimsstyrjöldinni. Að sögn Hrafnhildar Stefánsdóttur, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, veittu sprengjusérfræðingarnir því athygli að í tundurduflið var bundin heilleg tóg, án alls sjávargróðurs, sem bendir til þess að nýlega hafi einhverjir sýslað með duflið.

Virðist því sem það hafi lent í veiðarfærum annars skips en verið skilað aftur í sjóinn. Hrafnhildur segir slíkt ámælisvert, þannig hafi viðkomandi stofnað sínu eigin öryggi og annarra í hættu.  

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku


Tengdar fréttir