Tugþúsunda hækkun fasteignagjalda

Fasteignaskattur í Hafnarfirði hækkar í ár á sama tíma og hærra fasteignamat tekur gildi. Íbúi í bænum segir hækkunina þýði tugi þúsunda í aukaleg útgjöld og hefur beðið bæjarstjóra um skýringar.
Fasteignamat fyrir allt húsnæði á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um rúm sex prósent um áramót. Fasteignagjöld á húseigendur hækka því nema sveitarfélögin lækki fasteignaálögur. Það er allur gangur á því hvort fasteignaálögur hækka, lækka eða standa í stað í sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu í ár. Íbúar í Hafnarfirði hafa þó tekið eftir töluverðri hækkun á fasteignaálögum.
Fasteignagjöld breytast með ólíkum hætti hjá þremur stórum sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu. Í Kópavogi helst álagningarprósenta fasteignagjalda óbreytt milli ára. 0,32 prósent. Lóðaleigan hækkar í takt við vísitölu neysluverðs og fer úr 16,80 krónum á fermetra í 17,70 krónur á fermetra. Sorphirðugjaldið hækkar síðan um tæp þrjátíu prósent í 23 þúsund krónur vegna tilkomu nýrrar endurvinnslutunnu.
Í Reykjavík lækkar álagningarprósentan. Lóðaleigan hækkar hins vegar nokkuð og fer í 0,2 prósent. Sorphirðugjald helst óbreytt.
Fasteignaskattur á húseigendur í Hafnarfirði hækkar frá fyrra ári, fer í 0,32 prósent. Lóðaleiga helst óbreytt en sorphirðugjöld hækka.
Lilja Guðríður Karlsdóttir, verkfræðingur og íbúi í Hafnarfirði, vakti athygli á hækkunum í Fjarðapóstinum nýverið en henni brá heldur betur í brún þegar hún sá þýðingu þessara hækkana. „Við bara komumst að því að gjöldin á okkar fasteign eru að hækka um 27 prósent og við fengum bara svona nett áfallt.“
Inni í prósentutölunni sem Lilja nefnir eru hækkanir á fasteignasköttum, lóðaleigu, veitugjöldum og sorphirðugjaldi en fasteignamat á eign hennar hækkaði um fimmtán prósent milli ára. „Við erum náttúrulega í stóru húsi þannig að þetta er stór upphæð fyrir okkur. Þetta eru 85 þúsund í hækkun fyrir okkur.“
Lilja viðaði í framhaldinu að sér gögnum um sex önnur hús í bænum og sá þar samskonar þróun. „Og það er bara alls staðar hækkun. Lægsta hækkunin er tólf prósent en yfirleitt er svona meðaltalið svona um 23 prósent hækkun.“ Forvitnilegt sé að vita hversu miklu þessar hækkanir skili í bæjarsjóð. Lilja hefur beðið bæjarstjóra skýringa á hækkunum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







