Tryggvi jafnaði markametið í tapi

Stjarnan sigraði ÍBV í 19. umferð úrvalsdeildar karla í knattspyrnu í kvöld, 3-2. Bjarki Páll Eysteinsson, Daníel Laxdal og Halldór Orri Björnsson skoruðu mörk Stjörnunnar, en mark Halldórs Orra kom úr vítaspyrnu sem þótti umdeild.

Aaron Spear skoraði fyrra mark ÍBV og Tryggvi Guðmundsson síðari markið. Mark Tryggva var 126. markið hans í efstu deild og hefur hann því jafnað met Inga Björns Albertssonar yfir flest mörk skoruð í efstu deild.

ÍBV er eftir leikinn í 2. sæti deildarinnar með 39 stig, jafn mörg stig og topplið KR sem á þó reyndar leik til góða. ÍBV og KR mætast svo innbyrðis á Hásteinsvelli í næstu umferð á sunnudag.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku