Tónleikar í Hljómskálagarðinum



  • Prenta
  • Senda frétt

Hljómsveitin Of Monsters and Men mun halda útitónleika í Hljómskálagarðinum þann 7. júlí næstkomandi. Þetta verða einu tónleikar sveitarinnar á Íslandi í sumar en hún hefur verið á stífu tónleikaferðalagi um Evrópu og Bandaríkin undanfarna mánuði.

Tónleikarnir eru öllum opnir og með þeim vill sveitin þakka Íslendingum fyrir stuðninginn. Fyrsta plata þeirra, My Head is an Animal, hefur nú selst í 192.000 eintökum í Bandaríkjunum og sveitin er þétt bókuð um allan heim fram á haustið.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku