Tjald fauk af ferðamanni við Glym

Dönsk kona um þrítugt lenti í því óhappi í nótt að tjald sem hún svaf í fauk ofan af henni við Glym í Hvalfirði laust eftir miðnætti. Hún var ein á ferð að skoða íslenska náttúru. Menn úr Björgunarfélagi Akraness komu konunni til bjargar.

„Vandinn var sá að það var mjög hvasst. Það komu hviður þar sem var bara erfitt að standa og dótið hennar, tjaldið og megnið af þeim búnaði sem konan var með að það fauk bara í burtu,“ segir Þór Bínó Friðriksson, einn björgunarsveitarmanna. Hann segir að tjaldið hafi farið af stað meðan konan var enn inní því. „Það fauk þarna einhvern einn og hálfan eða tvo metra eftir jörðinni og á meðan reyndi hún bara að komast út. Svo þegar hún komst út úr tjaldinu þá bara hvarf það.“

Um 10 björgunarsveiatrmenn voru sendir til aðstoðar. Þar sem konan gat gefið nokkuð góða lýsingu á því hvar hún var stödd tók ekki langan tíma að finna hana. Þór Bínó segir að hún hafi verið vel á sig komin, bæði andlega og líkamlega.


Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent

Tilkynna um bilaða upptöku