Tilræði bendir til valdabaráttu í Íran
Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandríkjanna, segir allt benda til þess að æðstu klerkar í Íran hafi átt þátt í samsæri um að myrða sendiherra Sádí-Arabíu í Washington. Forseti Írans gæti hins vegar vel verið saklaus í þessu máli.
Bandaríska alríkislögreglan segist hafa afstýrt tilræðinu með því að handtaka íranskan mann sem mun hafa reynt að fá mexíkóskt glæpagengi til að koma fyrir sprengju á eftirlætis-veitingastað sádí-arabíska sendiherrans í Washington.
Vitorðsmaður í byltingarvörðunum
Maðurinn er sagður eiga sér hátt settan vitorðsmann í írönsku byltingarvörðunum, sem eru gríðarlega valdamiklir í Íran og heyra beint undir Khamenei, æðsta klerk landsins.
Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að sterkar líkur væru á að Khameini hafi vitað af tilræðinu. Hún sagði sagði hins vegar vel mögulegt að Ahmadinejad, forseti Írans, hafi ekki vitað af áformum byltingarvarðanna.
Spurningar um valdabaráttu
Því hafa spurningar vaknað um mögulega valdabaráttu innan íranska stjórnkerfisins. Forsetinn fer fyrir ríkisstjórn sem sér allajafnan um að stjórna landinu en æðsta vald hvílir alltaf hjá klerkastjórninni. Síðustu mánuði hafa komið í ljós brestir í samskiptum ríkisstjórnarinnar við klerkana og Ahmadinejad hefur ítrekað verið niðurlægður og ákvarðanir hans teknar til baka. Hugsanlegt þykir að einhver harðlínuöfl innan klerkastjórnarinnar vilji auka spennuna í samskiptum Írans og Bandaríkjanna og gera hinni veraldlegu ríkisstjórn erfitt fyrir á alþjóðavettvangi.
Fyrir sitt leyti neita Íranar eindregið aðild að málinu. Vinsælasta kenningin þar á bæ er að nota eigi tilræðið sem átyllu til að klekkja á Íran eða réttlæta hertar aðgerðir Sádí-Araba gegn sjítum í eigin landi og í grannríkinu Barein. Sádar segja herskáa sjíta njóta stuðnings frá Íran og hafa gengið hart fram gegn þeim síðustu ár.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







