Þúsund og ein þjóðleið komin út

Algengar þjóðleiðir á Íslandi, allt frá Sturlungu og fram til okkar daga, eru efni nýrrar bókar eftir Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóra. Hann fylgdi bókinni úr hlaði í dag með því að ríða í fylkingarbrjósti hestamanna niður Skálholtsstíg og meðfram Tjörninni að Iðnó.

Þar tóku Ólafur Örn Haraldsson formaður Ferðafélags Íslands og Haraldur Þórarinsson formaður Landssambands hestamannafélaga við fyrstu eintökum bókarinnar.

Jónas hefur áratugum saman safnað og skrásett þjóðleiðir landsins. Í bókinni, sem heitir Þúsund og ein þjóðleið, er leiðunum lýst í myndum og máli og þær sýndar á kortum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka