Þrír sjóðir áttu helming tapsins

Í tveimur af þremur lífeyrissjóðum sem töpuðu mestu á hruninu sitja enn menn í stjórn sem hafa verið þar frá því fyrir hrun. Lífeyrissjóðirnir þrír töpuðu rúmum helmingi af heildartapi allra lífeyrissjóðanna.
Í lífeyrissjóðaskýrslunni frá í gær er sjónum beint að 32 sjóðum. Stjórnendur sjóðanna eru gagnrýndir í skýrslunni fyrir óvarlegar fjárfestingar. Stjórnirnar hafi verið óþægilega meðvirkar eins og það er orðað. Meira en helmingurinn, 54%, af næstum 480 milljarða hrunstapi þeirra, er hins vegar vegna þriggja sjóða.
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, LSR tapaði mestu allra. Rúmum hundrað milljörðum. Í stjórn LSR sitja átta menn, þrír þeirra hafa verið þar síðan 2006 eða lengur. Þeirra á meðal, einn fulltrúa ríkisins, Maríanna Jónasdóttir, sem er nýtekin við, sem formaður stjórnarinnar. Hún var áður stjórnarformaður árið 2008. Forveri hennar var Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, en hann var stjornarformaður árið 2007.
Lífeyrissjóður Verslunarmanna tapaði um 80 milljörðum. Náin tengsl sjóðsins við veldi Bakkavararbræðra eru gagnrýnd í skýrslunni. Gunnar Páll Pálsson var fyrir hrun formaður VR, stjórnarformaður lífeyrissjóðsins og í stjórn Kaupþings. Búið er að skipta út öllum stjórnarmönnum Lífeyrissjóðs verslunnarmanna eftir hrun.
Lífeyrissjóðurinn Gildi tapaði 75,5 milljörðum. Sex af átta stjórnarmönnum hjá Gildi eru nýir, hafa tekið sæti eftir hrun. Heiðrún Jónsdóttir, fulltrúi atvinnurekenda kom inn í stjórnina 2008. Stjórnarformaðurinn, hins vegar, Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins, hefur meira og minna staðið í brúnni frá 2006. Verið til skiptis formaður eða varaformaður.
Samanlagt töpuðu þessir þrír sjóðir um 257 milljörðum vegna bankahrunsins, samkvæmt skýrslunni.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Hrunskýrsla lífeyrissjóðanna
Stjórnir lífeyrissjóðanna meðvirkar





