Þorgerður borgarlistamaður 2012

Flokkar: Innlent, Menning


  • Prenta
  • Senda frétt

Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri var í dag útnefnd borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2012. Útnefningin fór fram í Höfða þar sem Jón Gnarr borgarstjóri veitti listamanninum að þessu tilefni ágrafinn stein, heiðursskjal og viðurkenningarfé.

Menningar- og ferðamálaráð útnefnir árlega borgarlistamann og gerði Magnús Þór Gylfason grein fyrir vali ráðsins. Í lok athafnar söng Hamrahlíðakórinn undir stjórn Þorgerðar í Höfða.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að Þorgerður hafi unnið ómetanlegt frumkvöðlastarf í tónlist og menningaruppeldi.

Þorgerður stofnaði Kór Menntaskólans við Hamrahlíð árið 1967 og árið 1982 framhaldskór hans, Hamrahlíðarkórinn. Undir forystu Þorgerðar hafa kórarnir tveir unnið hvern sigurinn af öðrum hvort sem er á tónleikum innanlands eða á alþjóðlegum tónlistarhátíðum víða um heim.

Á þriðja þúsund ungmenna hafa hlotið tónlistaruppeldi í Hamrahlíðarkórunum hjá Þorgerði, meðal þeirra eru margir af fremstu tónlistarmönnum þjóðarinnar.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku