Þórey Rósa framlengir við Holstebro

Þórey Rósa Stefánsdóttir.

Þórey Rósa Stefánsdóttir, landsliðskona í handknattleik hefur framlengt um tvö ár við danska félagið Team Tvis Holstebro. Þórey gekk í raðir félagsins fyrir yfirstandandi leiktíð og hitti þar fyrir Rut Jónsdóttur sem hefur verið hjá liðinu í nokkur ár.

Með Þóreyju og Rut innanborðs hefur Tvis Holstebro leikið vel í vetur og hefur nú 27 stig í 2. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar, jafn mörg stig og Viborg sem trónir á toppnum.

Danski fréttavefurinn sporten.tv2.dk greinir frá því í dag að Þórey hafi gert nýjan tveggja ára samning við Tvis Holstebro og þar kemur einnig fram ánægja forráðamanna félagsins með hennar framlag í vetur.

Þórey segir sjálf á síðunni, „þetta er frábært félag með háleit markmið. Ég leik með fjölhæfum og góðum leikmönnum og hef vaxið sjálf sem leikmaður hjá liðinu, en get bætt mig ennþá frekar."

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku