Þór dregur tillöguna til baka



  • Prenta
  • Senda frétt

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, hefur ákveðið að draga til baka tillögu sína um vantraust á ríkisstjórnina. Þetta segist hann gera vegna kröfu forystumanna stjórnarflokkanna um að málið verði tekið á dagskrá þegar í dag. Slíkt sé í andstöðu við þingsköp.

Þórir segir í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér á tíunda tímanum að með kröfu sinni um afgreiðslu vantrauststillögunnar í dag gangi forystumenn stjórnarflokkanna gegn þeirri reglu að þingmál liggi frammi í að minnsta kosti tvær nætur áður en þau eru rædd á Alþingi. Þess vegna hefur hann ákveðið aðd raga málið til baka frekar en að una flýtimeðferð á því.

Þór ítrekar þó óánægju sína með hversu hægt gangi í stjórnarskrármálum. „Ef stjórnarmeirihlutinn getur ekki komið fram með raunhæfa tímasetta áætlun um hvernig á að ljúka stjórnarskrármálinu nú á allra næstu dögum er þó augljóst að þau ráða ekki við málið innan sinna raða og ber því að fara frá.“

Mikið hefur gengið á síðasta rúma hálfa sólarhringinn á Alþingi. Þór lýsti því yfir rétt fyrir hálf sex í gærdag að hann legði fram tillögu um vantraust á ríkisstjórnina vegna þess að hún hefði ekki staðið sig í stjórnarskrármálum. Forystumenn beggja stjórnarflokka lýstu furðu sinni á tillögunni en forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna lýstu stuðningi við vantrauststillöguna. Í morgun skrifuðu þingflokksformenn beggja stjórnarflokka svo forseta Alþingis bréf þar sem þeir fóru þess á leit að umræða um tillögu um vantraust færi fram í dag frekar en á þriðjudag í næstu viku. Skömmu síðar ákvað Þór svo að draga tillöguna til baka.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku