Austfjarðaþokan lætur ekki að sér hæða. Seinkun varð á Barðsneshlaupinu, sem er hluti Neistaflugshátíðarinnar í Neskaupstað, því bátur sem sá um að ferja keppendur yfir Norðfjarðarflóann, lenti á villigötum í þokunni. Allir komust þó yfir og enginn villtist á sprettinum til Neskaupstaðar. Hins vegar varð slys í hlaupinu, því einn keppenda varð fyrir bíl og meiddist. Gert var að sárum hans á sjúkrahúsinu.
frettir@ruv.is