Þjófstörtuðu konudeginum á Akureyri

Mynd: Sævar Herbertsson
Karlkyns starfsmenn Norðurorku þjófstörtuðu konudeginum í dag og dekruðu við samstarfskonur sínar á alla lund.
Karlarnir tóku á móti konunum í morgun með ástarpungum og rjómapönnukökum og færðu þeim blóm og kertastjaka.
Að sögn Önnu Klöru Hilmarsdóttur, ritara hjá Norðurorku, er komin hefð fyrir því að karlmennirnir á vinnustaðnum dekri við samstarfskonur sínar í tilefni konudagsins. Þar sem konudagurinn er á sunnudegi þá var dekrið í dag.
Í tilefni dagsins setti Páll Jóhannson, starfsmaður Norðurorku, saman vísur sem konurnar fengu afhentar í morgun.
Við óskum þess auðmjúkir kallar
og uppfærum hérna í brag
að stelpurnar okkar allar
eigi nú blessaðan dag.
Atgervi ykkar við rómum
og yndisleika flesta daga.
Nú birtist það með blómum
og brauði í svanga maga.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







