Þjálfari Slóvakíu sagði upp störfum

Slóvakar töpuðu fyrir Dönum í fyrsta leik sínum í A-riðli

Þjálfari karlalandsliðs Slóvakíu, Zoltán Heister, hefur sagt upp störfum eftir slakan árangur liðsins á Evrópumótinu í handknattleik í Serbíu.

Slóvakar, sem léku í A-riðli, gerðu jafntefli við Serbíu 21-21 en töpuðu fyrir Danmörku 30-25 og Póllandi 41-24. Liðið hafnaði neðsta sæti riðilsins með eitt stig og komst ekki áfram í milliriðla.

Stigið sem Slóvakar fengu gegn Serbum er þeirra fyrsta stig á Evrópumóti í handknattleik frá upphafi en þetta var í þriðja skipti sem Slóvakar taka þátt á EM.  

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku