Þingmenn vilja taka upp Skráargatið

Atvinnuveganefnd Alþingis leggur til að þingsályktunartillaga um hollustumerkið Skráargatið verði samþykkt. Hún felur í sér að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra verði að beita sér fyrir því að hægt sé að taka upp merkið við matvælaframleiðslu hérlendis.

Tilgangurinn með merkinu er að auðvelda neytendum að velja sér holl matvæli. Auk þess að leggja til að þingsályktunin verði samþykkt ætlar nefndin að leggja til breytingar á matvælalögum til að auðvelda og hraða upptöku Skáargatsins.

Í greinargerð Matvælastofnunar sem atvinnuveganefnd hafði til hliðsjónar segir að reynsla Svía, Dana og Norðmanna af notkun Skráargatsins sé góð. Vörum sem fá hollustumerki hafi fjölgað á markaði og sala þeirra aukist. Nýsjálendingar hafi einnig góða reynslu af sínu hollustumerki. Samtök iðnaðarins og Samtök atvinnulífsins hafa hins vegar gagnrýnt framkvæmdina við merkið og telja ekki víst að það hafi góð áhrif á mataræði fólks. Þeir gagnrýna að gert sé upp á milli góðra og slæmra matvæla. Þannig séu sumar tegundir útilokaðar frá merkinu og því hafi til dæmis framleiðendur sælgætis ekki hvata til að bæta vöru sína. Matvælastofnun tekur þó fram í greinargerð sinni að hún telji athugasemdir samtakanna tveggja órökstuddar.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku