Þingmaður dæmdur fyrir fjárdrátt

Dómstóll í Ostrava í Tékklandi hefur dæmt fyrrverandi þingmann á tékkneska þinginu til fimm ára fangelsisvistar fyrir fjárdrátt.

Petr Wolf var fundinn sekur um að hafa dregið sér háar fjárhæðir úr styrkjaáætlun á vegum stjórnvalda. Það gerði hann með því að framvísa fölsuðum skjölum um fyrirtæki og verkefni sem ættu í hlut. Wolf er fyrsti fyrrverandi þingmaðurinn í sögu Tékklands til að vera fundinn sekur um spillingu meðan hann starfaði sem þingmaður. Hann var þó ekki einn að verki því eiginkona hans fékk tveggja ára skilorðsbundinn dóm fyrir sína þátttöku.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku