Þingeyingar í ristilspeglun

Íbúum á svæði Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga býðst fljótlega ókeypis ristilspeglun. Um er að ræða forvarnarverkefni gegn ristilkrabbameini sem Lionsklúbbur Húsavíkur stendur fyrir.
Verkefnið er hugsað þannig að næstu 5 árin verður öllum 55 ára íbúum á svæðinu boðið upp á ókeypis ristilspeglun. Íbúar svæðisins fá fljótlega bréf með nánari upplýsingum um verkefnið og framkvæmd þess en það er árgangur 1957 sem verður fyrst boðaður í skoðun á næsta ári og síðan koll af kolli.
Verkefnið er alfarið fjármagnað af Lionsklúbbi Húsavíkur sem leitað hefur stuðnings hjá félögum og fyrirtækjum á svæðinu. Það er síðan unnið í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Þingeyinga.
„Þetta er stórt verkefni hjá Lionsklúbbnum. Lionsmenn hafa staðið sig gríðarlega vel við að safna fé og standa að málinu á metnaðarfullan hátt. Undirtektir hafa verið slíkar að þeir treysta sér í það að fara í þetta verkefni þótt það kosti vissulega mikla peninga. Það á þó ekki að bitna á öðrum á öðrum þjóðfélagsþegnum þannig að þetta verður sér rannsóknarverkefni Þingeyinga,“ segir Ásgeir Böðvarsson, yfirlæknir á heilsugæslustöðinni á Húsavík. Hann veit ekki til þess að sambærilegt verkefni sé í gangi annarsstaðar á landinu. Ásgeir segir fulla þörf á forvarnarstarfi sem þessu enda ristilkrabbamein vaxandi sjúkdómur.
„Það er talsvert algengt og það fer vaxandi. Á milli 100 og 120 greinast á hverju ári. Þetta er lúmskur sjúkdómur og flestir eru sammála um að forvarnir með svona skimun eru gríðarlega mikilvægar.“
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














