Þarf að slátra hundruðum hrossa

Flokkar: Innlent
Mynd: Shutterstock


  • Prenta
  • Senda frétt

Útflutningur á hrossum er í algjöru lágmarki og evrukreppan hefur mikil áhrif á hrossaræktun á Íslandi, segir Sigurbjörn Bárðarson, tamningamaður og hrossaræktandi.

Hann segir greinina eiga undir högg að sækja en mun minni eftirspurn hafi verið eftir hrossum til kaups eftir nýafstaðið Landsmót en áður. Lítil sala sé á hrossum til Svíþjóðar og Þýskalands en þar hafi áður verið stærsti markaðurinn fyrir íslensk hross.

Mikil vinna og kostnaður liggi að baki hrossaræktun og -tamningu og því sitji margir hrossabændur uppi með mikið tap og fjölda hrossa sem þeir losni ekki við.

„Það liggur berlega við að við þurfum að grisja stofninn okkar, við þurfum að fækka. Þetta er allt of mikið af hrossum hjá okkur. Það þarf að skera niður og það þýðir að það þarf að slátra því sem ekki er markaðsvænlegt. Það þýðir að við þurfum að skera helling niður, það eru hundruðir hrossa sem þarf að skera niður, það er ekki nokkur spurning.“ sagði Sigurbjörn Bárðarson í viðtali í Morgunútvarpinu.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku