Terry sviptur fyrirliðabandinu

Anton Ferdinand og John Terry. Ferdinand kærði Terry fyrir kynþáttaníð.
Forráðamenn enska knattspyrnusambandsins haf svipt John Terry fyrirliðabandinu hjá enska landsliðinu. Terry var kærður fyrir kynþáttaníð í leik Chelsea og QPR fyrr í vetur, en enska knattspyrnusambandið ákvað að fresta málstöku þar til eftir Evrópumót landsliða í sumar.
Auðvelt var þó að greina óhróðurinn sem vall úr munni Terrys í umræddum leik á sjónvarpsupptökum. Málið hefur vakið mikla athygli, því Úrúgvæinn Luis Suarez leikmaður Liverpool fékk 7 leikja bann fyrir kynþáttaníð í desember en máli Terry er slegið á frest. Enskir fjölmiðlar hvöttuTerry til að segja af sér sem fyrirliði enska landsliðsins, því fyrirliðar eigi að vera fyrirmyndir, en það rýri ímynd Terry verulega að hann á yfir höfði sér kæru fyrir kynþáttaníð. Þetta er í annað sinn sem Terry er sviptur fyrirliðabandinu, því í febrúar 2010 var fyrirliðabandið tekið af honum eftir að upp komst um að hann hefði sængað hjá konu liðsfélaga síns og haldið ítrekað framhjá konu sinni.
Terry verður því ekki fyrirliði Englands á EM í sumar og því annað stórmótið í röð sem hann ber ekki bandið. Terry var ekki fyrirliði Englands á HM 2010, heldur Rio Ferdinand. Athyglisvert er að bróðir Rio, Anton Ferdinand er téður leikmaður QPR sem kærði Terry fyrir kynþáttaníð.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







