Telur að menn hafi fylgst með nauðgun
Fyrst birt: 08.01.2013 20:55, Síðast uppfært: 08.01.2013 20:55
Flokkar: Innlent, Dóms- og lögreglumál

Mynd: Þórgunnur Oddsdóttir
19 ára piltur lagði í morgun fram kæru vegna nauðgunar aðfararnótt sunnudags. Maðurinn var í miðbæ Reykjavíkur þegar hann hafði samband við lögreglu og var í kjölfarið fluttur á neyðarmóttöku vegna kynferðisafbrota.
Maðurinn telur gerandann hafa verið einan að verki, en útilokar ekki að fleiri hafi fylgst með. Ekki liggur fyrir hverjir þeir eru. Maðurinn gaf skýrslu hjá lögreglu í dag. Enn er á reiki hvar ódæðið var framið en lögregla rannsakar málið og fer meðal annars yfir myndir úr eftirlitsmyndavélum í miðbænum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













